
George W. Bush forseti Bandaríkjanna, og John Kerry öldungadeildarþingmaður, tókust harkalega á um utanríkismál, einkum Íraksmálið, varnir landsins og stríðið gegn hryðjuverkum, í fyrstu kappræðum sínum sem fram fóru í Miami-háskóla í Coral Gables í Flórída, í gærkvöldi. Fréttastjórnandinn Jim Lehrer úr þættinum NewsHour á PBS, stjórnaði kappræðunum sem stóðu í 90 mínútur. Er þetta í níunda skipti sem Lehrer er spyrill í kappræðum bandarískra forsetaefna. Frambjóðendurnir stóðu við ræðupúlt og svöruðu spurningum Lehrer til skiptis og máttu svara hvor öðrum en ekki spyrja hvorn annan beint. Að því loknu fluttu þeir tveggja mínútna lokaorð. Það er kaldhæðnislegt að fyrsta lota kappræðnanna skyldi fara fram í Flórída. Þar réðust úrslit forsetakosninganna 2000, eftir margra vikna karp um talningu atkvæða og undarlegt kosningakerfi sem flækti mjög málin. Stefnir allt í álíka jafnar kosningar í fylkinu nú og voru árið 2000, ekki er marktækur munur á forsetaefnunum í nýjustu könnunum í Flórída. Hófust þessar fyrstu kappræður með vinsamlegum orðum frambjóðandanna til íbúa í Flórída, en náttúruhamfarir hafa riðið yfir íbúa fylkisins á undanförnum vikum. Vitað var fyrir kappræðurnar að Kerry myndi sækja af krafti allt frá upphafi, hann yrði að sanna sig og vera beittur og óvæginn til að ná til hins óákveðna kjósenda og ná að veikja málstað forsetans. Hann byrjaði með hörðum árásum á forsetann, sakaði hann um stórfelldan dómgreindarbrest í starfi sínu og að valda ekki leiðtogahlutverki sínu. Bush forseti, virkaði rólegur og ákveðinn við harkalegum skotum keppinautarins og benti á vel sjáanlegar misfellur í málflutningi hans í utanríkismálum seinustu árin, miðað við það sem heyrist nú, einkum þegar vikið var að umræðunni um Íraksmálið. Að mínu mati var boðskapur forsetans betri, en Kerry kom sínu betur til skila með hvassri og beittri framgöngu. Ekkert breytir þó því að boðskapur Kerry er mjög götóttur.

Upptaka af fyrstu kappræðum George W. Bush og John Kerry
Hápunktar í fyrstu kappræðum George W. Bush og John Kerry
Kappræður George W. Bush og John Kerry - endurrit af umræðunum

Stjórn Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, kom í gærkvöldi saman til síns fyrsta fundar undir minni stjórn, eftir aðalfund félagsins fyrir viku. Þar voru samþykktar tvær ályktanir, svohljóðandi:
Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, fagnar því að stofna eigi einkahlutafélag um gerð hálendisvegar um Stórasand. Hvetur Vörður fyrirtæki í bænum til að taka þátt í þessu verkefni. Er enginn vafi á að mikilvægt er að ná fram sem mestri styttingu á leiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur. Það er nauðsynlegt að lækka flutningskostnað milli Akureyrar og Reykjavíkur og ekki síður milli Norðausturlands og Austfjarða til Reykjavíkur. Ef af vegagerð um Stórasand yrði myndi leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur styttast um rúmlega 80 kílómetra. Sjálfstæðisflokkurinn í Norðausturkjördæmi lagði mikla áherslu á þessa vegagerð í seinustu alþingiskosningum og hefur oft síðan ítrekað þessa tillögu sem nauðsynlega til að stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur, sem er mikið þarfaverkefni. Halldór Blöndal forseti Alþingis, flutti á seinasta þingvetri tillögu til þingályktunar um að samgönguráðherra yrði falið að undirbúa og hrinda í framkvæmd nauðsynlegum rannsóknum og mælingum vegna vegagerðar frá Norðurárdal í Skagafirði um Stórasand til Borgarfjarðar. Vörður ítrekar þá stefnu félagsins að tillagan um Norðurveg komi til framkvæmda á næstu árum og verði að veruleika. Hér er um mikið forgangsmál að ræða fyrir okkur á landsbyggðinni og mikilvægt að hefjast handa og sameinast um að koma þessu í gegn sem fyrst.

Dagurinn í dag
1880 Möðruvallaskóli í Hörgárdal, fyrsti gagnfræðaskóli á Íslandi, tók til starfa við hátíðlega athöfn - skömmu eftir aldamótin var skólinn fluttur til Akureyrar og varð að Menntaskólanum á Akureyri
1933 Ásta Magnúsdóttir var skipuð ríkisféhirðir - Ásta var fyrsta konan sem hlaut opinbert embætti
1981 Ökumönnum og farþegum í framsætum bifreiða var gert skylt að nota bílbelti við akstur á vegum - átta árum síðar, árið 1989, var farþegum í aftursæti bifreiðar gert skylt að nota bílbelti
1982 Helmut Kohl leiðtogi kristilegra demókrata, tók við embætti kanslara Þýskalands af jafnaðarmanninum Helmut Schmidt. Kohl gegndi kanslaraembætti til ársins 1998, eða í 16 ár
1987 Fimmtudagskvöld hættu að vera sjónvarpslaus í Ríkissjónvarpinu þegar útsendingar hófust þau kvöld, í harðri samkeppni við Stöð 2. Þá fyrst voru sjónvarpsútsendingar hjá RÚV öll kvöld vikunnar
Snjallyrði dagsins
Bláu augun þín blika ljós og skær,
lýsa leiðina mína líkt og stjörnur tvær.
Þó að liggi leið mín um langan veg
aldrei augnanna þinna eldi gleymi ég.
Ólafur Gaukur Þórhallsson (Bláu augun þín)
<< Heim