Pælingar Stefáns Friðriks Stefánssonar

Honum er ekkert mannlegt óviðkomandi - frelsið er yndislegt!

07 júlí 2005

Hryðjuverkaárás í London

Breski fáninn í hálfri stöng í Buckingham höll

Tugir almennra borgara létu lífið í fjórum sprengingum í London í morgun og fjölmargir særðust lífshættulega. Heimsbyggðin stendur sem felmtri slegin eftir þessi mannskæðu hryðjuverk í miðborg London, sem hitta fyrir saklausa borgara og er beint að þeim þáttum sem veldur mestum skaða, samgöngukerfinu. Margir höfðu lengi búist við að hryðjuverkamenn myndu láta til skarar í Bretlandi, en þegar það gerðist varð undrun fólks þess því meiri. Áfallið er mikið og breskt samfélag er sem lamað eftir árásirnar. Lengi hefur al-Qaeda talað um að ráðast á Bretland og nú hefur það gerst, illu heilli. Lögreglu hafði ekki borist viðvörun um að hryðjuverk væru yfirvofandi. Áður óþekkt sella sem tengir sig við al-Qaeda hryðjuverkasamtökin hefur nú lýst þessu hryðjuverki á hendur sér. Bera hryðjuverkin að öllu leyti handbragð al-Qaeda.

Mjög margt er líkt með hryðjuverkinu á Spáni þann 11. mars 2004. Sprengjur í bakpokum sprungu þá í lestum í miðborginni og í úthverfum. Tæplega 200 manns létu lífið í þessu hryðjuverki. Lengi vel fullyrtu spænsk yfirvöld að ETA stæði að baki þeim, en bakpokasprengjur og koparhvellhettur sem tendraðar eru með boðum úr farsíma báru þó ekki merki um handbragð ETA. Ljóst varð því fljótt að al-Qaeda stóð að baki. Hryðjuverkaárásin í London í morgun var líkt og hryðjuverkaárásin í Madrid í fyrra bæði ófyrirleitin og grimmdarleg. Henni var einvörðungu beint gegn saklausum borgurum. Ætlunin var í senn bæði að myrða og særa óbreytta borgara. Árásunum var ekki beint að þjóðarleiðtogum eða hefðarfólki. Þeir sem féllu í valinn, særðust og urðu fyrir henni að einhverju leyti er saklaust fólk sem ekkert hefur sér til sakar unnið.

Vinnubrögð af þessu tagi og árásin sem slík, í senn bæði nú og í fyrra á Spáni, ætti að sannfæra alla heimsbyggðina um hvernig al-Qaeda og tengd hryðjuverkasamtök vinna. Þau skeyta engu um mannslíf, svífast einskis til að ráðast að vestrænum gildum og mannlegri tilveru. Hér er auðvitað ekki einvörðungu um að ræða árás á breskt samfélag, breska þegna og tilveru þeirra. Þetta er auðvitað aðför að öllum sem tilheyra vestrænu samfélagi. Þessu ber að taka með þeim hætti og það ber auðvitað að bregðast við ákveðnum hætti. Uppræta þarf hryðjuverkasamtök sem vinna með þessu tagi og ráðast að saklausum borgurum með svo grimmdarlegum og ógeðfelldum hætti. Jafnframt má búast við að vestrænt samfélag sameinist í viðbrögðum sínum.

George W. Bush, Tony Blair og Jacques Chirac

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands, var staddur á leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims í Gleneagles í Skotlandi þegar hryðjuverkaárásin í London átti sér stað í morgun. Hann ávarpaði bresku þjóðina og heimsbyggðina alla vegna þessa skelfilega voðaverks frá Skotlandi í morgun. Hann sagði þar að hryðjuverkaárásirnar hefðu verið gerðar vegna þess að á sama tíma væru leiðtogar helstu iðnríkja heims að funda. Sagði hann það sérstaklega villimannslegt að árásirnar hefðu verið gerðar á sama tíma, og þjóðarleiðtogar sætu á fundi til að ræða um aðgerðir til að aðstoða Afríku og draga úr loftslagsbreytingum. Þá sagði forsætisráðherrann að þrátt fyrir þetta illverki hryðjuverkamanna myndu Bretar standa vörð um þau gildi og lifnaðarhætti sem þeir hefðu alla tíð haft í heiðri og staðfesta landsmanna, væri meiri en hryðjuverkamanna, sem vildu í senn valda saklausu fólki dauða og limlestingum og koma fram öfgastefnu víðsvegar um heim.

Blair sagði í yfirlýsingu sinni að hann og ríkisstjórn hans myndu í samstarfi við landsmenn alla berjast gegn vágestinum. Ekki kæmi til greina að láta hann eyðileggja það sem byggt hafði verið upp í bresku samfélagi. Blair kom fram af festu og krafti með yfirlýsingu sinni og sannaði styrk sinn sem stjórnmálamanns að mínu mati með ræðu sinni í Skotlandi í morgun. Hann var augljóslega mjög skelkaður er hann flutti ræðuna og sýndi með tignarlegum hætti rétt viðbrögð og að mínu mati var þetta með betri ræðum stjórnmálaferils forsætisráðherrans. Í kjölfar ræðunnar kom hann fram opinberlega með þjóðarleiðtogunum og þeir sýndu fram á samstöðu sína. Eftir hádegið hélt forsætisráðherrann svo til London til að fylgjast betur með stöðu mála. Fundurinn hélt áfram í Gleneagles og tók Jack Straw utanríkisráðherra Bretlands, við stjórn hans í fjarveru forsætisráðherrans sem er væntanlegur að nýju til Gleneagles í kvöld.

Leiðtogarnir standa sameinaðir í Gleneagles

Eins og sjá má af myndinni hér að ofan komu leiðtogar iðnríkjanna átta á fundinum í Gleneagles fram opinberlega saman auk gesta sinna á fundinum, leiðtogum annarra ríkja. Þeir stóðu þar saman meðan Blair las yfirlýsingu í nafni þeirra allra. Þetta skelfilega hryðjuverk varð til þess að þeir urðu sammála um framkvæmdir og orðið samstaða verður vonandi lykilorð þessa leiðtogafundar, er honum lýkur formlega. Það þarf að vinna sameinað að þeim verkefnum sem skipta máli, samstaða og samheldni þarf að verða niðurstaða þessa fundar. Það má ekki láta hryðjuverkaöflin eyðileggja þennan fund og yfirskyggja hann með þessum skelfilega verknaði. En nú þegar dagur er að kveldi kominn er efst í huga allra að standa saman, allir heimsbúar séu sameinaðir í baráttunni gegn hryðjuverkum. Það er ásetningur þessara niðurrifsafla að sundra samstöðu heimsins. Það mun ekki takast, svo lengi sem við stöndum saman gegn þeirri ógn sem blasir við.

Saga dagsins
1917 Ríkisstjórn kommúnista mynduð í Rússlandi, í kjölfar þess að keisaranum var steypt af stóli.
1954 Lag með Elvis Presley spilað í fyrsta skipti í útvarpi - tónlist Elvis markaði mjög mikil þáttaskil.
1967 Óskarsverðlaunaleikkonan Vivien Leigh deyr í London, 53 ára að aldri. Á 30 ára leikferli sínum hlaut hún tvisvar óskarsverðlaun: fyrir túlkun á Scarlett O'Hara í Gone with the Wind og Blanche í A Streetcar Named Desire. Vivien var um tíma gift Shakespeare-leikaranum Sir Laurence Olivier.
1983 Ray Charles konungur soultónlistarinnar, hélt góða tónleika á Íslandi - hann lést í júní 2004.
1996 Vesturfarasetrið opnað á Hofsósi - það er safn um vesturferðir Íslendinga undir lok 19. aldar.

Snjallyrðið
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.
Jónas Hallgrímsson skáld (1807-1845) (Ég bið að heilsa)