Heitast í umræðunni
Bill Clinton fyrrum forseti Bandaríkjanna, kom til landsins kl. 9 í morgun. Er þetta fyrsta heimsókn núverandi eða fyrrum þjóðarleiðtoga Bandaríkjanna í 18 ár, en Ronald Reagan þáverandi forseti Bandaríkjanna, kom á leiðtogafund stórveldanna í Reykjavík, í október 1986. Clinton hélt frá Reykjavíkurflugvelli ásamt fylgdarliði sínu í bandaríska sendiráðið við Laufásveg. Eftir að hafa staldrað þar við í tæpan hálftíma ræddi hann við fréttamenn fyrir utan sendiráðið. Kom þar fram að hann stoppaði hér í dag á leið sinni til Írlands, þar sem hann ætlaði að árita nýútkomna ævisögu sína. Lýsti hann ánægju með að fá tækifæri til að sækja landið heim, hann hefði aðeins komið hingað áður í millilendingum og aldrei getað skoðað sig um og hefði lýst sérstökum áhuga á að sjá Þingvelli. Nefndi forsetinn fyrrverandi að í fyrsta skiptið hefði hann komið til Íslands fyrir 35 árum er hann var námsmaður og fór með Loftleiðum milli Bandaríkjanna og Evrópu. Var Clinton spurður t.d. um forsetaslaginn í Bandaríkjunum og ávirðingarnar sem ganga á milli forsetaefnanna um herþjónustu Kerrys í Víetnam. Sagðist hann vona að kosningabaráttan yrði málefnaleg fram að kjördegi, á hann von á að Bush nái nokkru forskoti samhliða flokksþinginu í næstu viku en úrslitin muni ráðast af frammistöðu frambjóðendanna í kappræðum þeirra. Forsetinn, sem þekktur er fyrir alþýðleika, lét ráðleggingar lífvarða sinna lönd og leið er hann heilsaði konu við sendiráðið sem hafði heyrt af komu hans í sendiráðið og fór í fréttamannahópinn og heilsaði henni hlýlega, smellti á hana kossi og hlýjum kveðjum.
Frá sendiráðinu hélt Clinton að Þingvöllum. Þar kynnti Sigurður Líndal fyrrum lagaprófessor, honum sögu staðarins. Eftir hádegið hélt hann aftur til borgarinnar og labbaði hann um miðbæinn. Hann fór að þinghúsinu og að styttu Jóns Sigurðssonar forseta við Austurvöll, heimsótti Listasafn Reykjavíkur í Tryggvagötu, gekk eftir Laugaveginum og hélt að Bæjarins bestu í Tryggvagötu og fékk sér eina með öllu. Um þrjúleytið heimsótti hann ásamt eiginkonu sinni, Hillary Rodham Clinton (sem kom til landsins ásamt þingmannanefnd í morgun), Davíð Oddsson forsætisráðherra, og eiginkonu hans, Ástríði Thorarensen, á heimili þeirra við Fáfnisnes í Reykjavík. Eftir langan fund þeirra ræddu Davíð og Clinton við fréttamenn. Sagði forsetinn fyrrverandi að stjórn Íslendinga á alþjóðaflugvellinum í Kabúl í Afganistan væri gríðarlega mikilvæg. Þakkaði hann Íslendingum fyrir störf sín á flugvellinum. Kom fram að mati hans að Osama bin Laden og al-Qaeda væru helsta ógnin við öryggi Bandaríkjanna og því mikilvægt að stjórn Afganistans sé trygg. Hillary Clinton þakkaði Davíð Oddssyni fyrir forystu hans við að afla Bandaríkjunum stuðning. Fram kom af hálfu Davíðs að heilsa hans færi sífellt batnandi og sagðist hann munu hefja störf fyrir formleg forsætisráðherraskipti þann 15. september. Að fundinum loknum héldu Clinton-hjónin að Bessastöðum og hittu forsetahjónin og fóru að því loknu til Reykjavíkur og hittu utanríkisráðherra. Að því loknu héldu þau af landi brott, eftir viðburðaríkan dag hérlendis.
Í morgun kom til landsins bandarísk þingmannanefnd, í þeim hópi voru t.d. Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður og fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, og John McCain öldungadeildarþingmaður og fyrrum forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum. Tilgangur heimsóknarinnar var að fjalla um loftslagsbreytingar auk þess sem nefndin ætlaði að ræða stöðu varnarmála á Íslandi. Sagðist McCain vilja ræða við íslenska vini sína og þakka þeim kærlega fyrir hina miklu hjálp, sem þeir hefðu veitt Bandaríkjunum til fjölda ára. Hefði hann til fjölda ára haft áhuga á að koma til Íslands. Kom nefndin til landsins frá Svalbarða og hafði McCain það á orði að óvænt hefði verið hversu heitt var þar. Átti þingnefndin fundi með íslenskum fulltrúum í Bláa lóninu og ræddi t.d. við fjóra ráðherra ríkisstjórnarinnar, þau Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra, Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Að fundunum loknum kynnti nefndin sér lónið og fékk sér sundsprett þar. Á fundi með blaðamönnum síðdegis sagði McCain að enginn vafi væri á því í sínum huga að Bandaríkjamenn ættu að viðhalda varnarviðbúnaði á Íslandi. Sagði hann ótvírætt væri að Ísland gegndi gríðarlega mikilvægu hlutverki, hernaðarlega og landfræðilega, milli Evrópu og Ameríku. Mjög ánægjulegt var að heyra þetta mat McCain og gott að tvíhliða varnarsamningur landanna sé svo mikils metinn af hans hálfu. Það er eins og ég hef oft bent á í skrifum mínum, mikilvægt að tvíhliða varnarsamningur verði virtur og ekkert ákveðið nema í fullu samráði og komið í veg fyrir einhliða aðgerðir í takt við þær sem beita átti í maí 2003.
Áhugavert á Netinu
Kveðja frá Slóveníu - pistill Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra
Íbúðalánasjóður er tákn liðinna tíma - pistill á Vef-Þjóðviljanum
Frjálshyggjudeild Heimdallar heldur fund um áfengislöggjöfina í Iðnó
Umfjöllun um Íslandsför Bill Clinton fyrrv. forseta Bandaríkjanna
Clinton-hjónin heimsóttu Davíð og Ástríði á heimili þeirra í Reykjavík
Davíð Oddsson forsætisráðherra, segir heimsókn Clintons ánægjulega
Bill Clinton segist hafa átt góðan dag á Íslandi - Clinton á Bessastöðum
Orku- og umhverfismál ofarlega á baugi í huga Clinton-hjónanna
Clinton segir að framlag Íslendinga í Afganistan sé mjög mikilvægt
John McCain vill hafa her áfram á Íslandi - McCain synti í Bláa lóninu
Ánægjuleg þáttaskil á fasteignamarkaði - bankar bjóða nú íbúðalán
Umdeildur pistill Guðjóns Ólafs Jónssonar um ráðherramál Framsóknar
Skrif varaþingmanns Framsóknar leiða til mikilla deilna og átaka
Halldór Ásgrímsson segir að ákvörðun um ráðherraskipan verði ekki breytt
Dr. Condoleezza Rice valin valdamesta konan af Forbes-tímaritinu
Vinna við drög að ályktunum málefnaþings SUS, á Selfossi, langt komnar
Karl Bretaprins sakaður um að beita starfsfólk sitt kynjamisrétti
Ný þýsk mynd sem fjallar um síðustu daga Hitlers vekur umtal og deilur
Dagurinn í dag
1903 Ríkið keypti jarðirnar Hallormsstað í S-Múlasýslu og Vaglir í S-Þingeyjarsýslu, til skógarfriðunar og skógargræðslu. Þar eru nú stærstu skógar landsins: Hallormsstaðaskógur og Vaglaskógur
1906 Símskeytasamband við útlönd hefst með formlegum hætti - fyrsti sæsíminn var 534 sjómílur
1968 Norræna húsið í Reykjavík var vígt formlega - arkitekt hússins var finninn Alvar Aalto
1993 Uppþot og uppreisn varð meðal fanga í fangelsinu að Litla Hrauni - stóð í tæpan sólarhring
2001 Helgi Símonarson frá Þverá í Svarfaðardal, lést, 105 ára að aldri - varð elstur allra manna
Snjallyrði dagsins
It only takes 20 years for a liberal to become a conservative without changing a single idea.
Robert Wilson heimspekingur

<< Heim