Pælingar Stefáns Friðriks Stefánssonar

Honum er ekkert mannlegt óviðkomandi - frelsið er yndislegt!

31 ágúst 2004

Valgerður SverrisdóttirHeitast í umræðunni
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, kynnti á blaðamannafundi í dag, skýrslu nefndar sem hún skipaði til að fjalla um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis. Leggur nefndin til að hluthöfum fyrirtækja verði auðveldað að fara fram á sérstaka rannsókn á starfsemi félags og að nægilegt sé að tillaga um rannsókn hljóti fylgi hluthafa sem ráða yfir 1/10 hlutafjárins. Sagði viðskiptaráðherra á blaðamannafundinum að það kæmi sífellt betur í ljós, að það væri þörf á skýrum reglum í viðskiptaumhverfinu. Þetta væri almennt viðhorf í hinum vestræna heimi og aukin upplýsingagjöf um þessi mál væri sjálfsögð. Sagðist hún vonast til að sýrslan fengi vandaða og málefnalega umfjöllun og mikilvægt væri að fá viðbrögð við henni. Nefndin kemur að mestu fram með tillögur sem lúta að þremur meginþáttum: reikningshaldi og vottun þess, stjórnháttum fyrirtækja og samkeppnismálum. Lagt er t.d. til að stjórnum félaga verði skylt að fá samþykki hluthafafundar á starfskjarastefnu fyrir stjórnendur, þar á meðal varðandi kaupréttarsamninga, árangurstengdar greiðslur, hlunnindi, uppsagnarfrest og starfslokasamninga. Þá segir í álitinu að meirihluti nefndarinnar telji að stjórnarformanni hlutafélags verði ekki heimilt að taka að sér önnur störf fyrir félagið en þau sem falla undir eðlileg störf stjórnarformanns. Stjórn félagsins geti þó falið formanni að vinna einstök verkefni fyrir stjórnina. Segist nefndin ekki telja æskilegt að stjórnarformenn séu í reynd hluti af framkvæmdastjórn félags enda sé eitt af hlutverkum stjórnarformanns að stýra eftirliti stjórnar með félaginu. Ekki liggur nákvæmlega fyrir á þessari stundu hvaða breytingar verða lagðar til á stjórnsýsluþáttum gagnvart Samkeppnisstofnun. Er fróðlegt að fara yfir niðurstöður skýrslunnar. Gylfi Magnússon dósent við Háskóla Íslands, var formaður nefndarinnar en auk hans voru í nefndinni Guðrún Helga Brynleifsdóttir hdl. og rekstrarhagfræðingur, Illugi Gunnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra, Orri Hauksson framkvæmdastjóri, Páll Magnússon aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Stefán Svavarsson löggiltur endurskoðandi, og Þórdís J. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík.

Rudolph GiulianiFlokksþing Repúblikanaflokksins hófst í Madison Square Garden í New York í gærkvöldi. Stjörnur flokksþingsins á fyrsta kvöldinu voru Rudolph Giuliani fyrrum borgarstjóri New York, Michael Bloomberg borgarstjóri, Dennis Hastert forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, og John McCain öldungadeildarþingmaður og mótframbjóðandi forsetans um útnefningu repúblikana í forsetakosningunum árið 2000. Lofuðu þeir allir mjög forystu forsetans í utanríkismálum og stríðinu gegn hryðjuverkum. Sagði McCain í ræðu sinni að barátta ríkisstjórnar George W. Bush gegn hryðjuverkum væri óhjákvæmileg og hana yrði að leiða til lykta. McCain sagði að Bush hefði heitið "óvini Bandaríkjanna" því að grípa til aðgerða og það hefði forsetinn gert. Þá studdi McCain ákvörðun Bush um að ráðist inn í Írak, sagði aðgerðina nauðsynlega og markmið ríkisstjórnarinnar göfugt. Hann gerði ekki atlögu að John Kerry, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í ræðu sinni, sagði pólitískt þref um stríð gegn hryðjuverkum vera deila á milli vina, repúblikana og demókrata. Hinsvegar gagnrýndi hann harkalega kvikmyndagerðarmanninn Michael Moore fyrir verk sín, en kvikmynd hans Fahrenheit 9/11 er mikil ádeila á ríkisstjórn George W. Bush. Var Moore viðstaddur, enda einn fjölmiðlamanna sem sitja þingið og var honum ákaft mótmælt við orð McCain og púað látlaust á hann. McCain sló í gegn og varð ræða hans mjög til að efla þingfulltrúa og þurfti hann margoft að gera hlé á ræðu sinni vegna fagnaðarláta. Giuliani var hylltur er hann flutti ræðu sína og er greinilegt að hann nýtur gríðarlegra vinsælda innan flokksins og er þegar farið að ræða um hann sem forseta- eða varaforsetaefni flokksins að fjórum árum liðnum. Í kvöld munu Laura Welch Bush forsetafrú, Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri í Kaliforníu, Rod Paige menntamálaráðherra, Elizabeth Dole öldungadeildarþingmaður, og Bill Frist leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, ávarpa flokksþingið.

SíminnStjórnarflokkarnir eru samstiga um að hefja einkavæðingarferli Símans fyrir lok ársins og stefnt er að því ríkið hafi selt öll hlutabréf sín í fyrirtækinu snemma á næsta ári. Hef ég lengi verið þeirrar skoðunar að einkavæða eigi Landssímann og taldi hlutafélagavæðingu fyrirtækisins gott skref í þá átt. Það voru mikil vonbrigði að einkavæðingarferli fyrirtækisins skyldi fara af sporinu með þeim hætti sem var árið 2001. Það var mikil óheppni að það skyldi fara af stað einmitt á þeim tímapunkti, í kringum hryðjuverkin í Bandaríkjunum og slæmt hvernig það fór. Þess meiri ástæða er til að hefja undirbúninginn að einkavæðingu sem fyrst og vanda betur til verksins en gert var áður, enda mikilvægt að ríkið hætti afskiptum sínum af þessum geira. Það er gott að stjórnarflokkarnir hafi tilkynnt að ferlið hefjist og því fylgt eftir því sem stendur í stjórnarsáttmálanum, þ.e. að loks skuli fylgt eftir heimild Alþingis um sölu á hlut ríkisins í fyrirtækinu. Mikilvægt er þó vissulega að gæta þess að sala fyrirtækisins fari fram þegar markaðsaðstæður eru hagstæðar og tryggt að ríkissjóður fái sanngjarnt verð fyrir Landssímann.

Dagurinn í dag
1919 Jóhann Sigurjónsson skáld og rithöfundur, deyr í Kaupmannahöfn, 39 ára að aldri
1980 Silfursjóður fannst við Miðhús á Fljótsdalshéraði - verið deilt um aldur silfursins allt frá því
1980 Verkalýðssamtökin Samstaða stofnuð í Póllandi - leiddi uppreisn gegn kommúnistastjórninni
1994 Írski lýðveldisherinn lýsir yfir fullu vopnahléi, eftir 25 ára baráttu með sprengjuárásum
1997 Díana prinsessa af Wales, deyr, í bílslysi í París í Frakklandi. Díana var 36 ára er hún lést

Snjallyrði dagsins
A disingenuous filmmaker who would have us believe that Saddam's Iraq was an oasis of peace.
John McCain öldungadeildarþingmaður (sagt um Michael Moore - úr ræðu á flokksþingi repúblikana)